Kiljan

11. mars 2026

Í Kilju vikunnar hittum við Maó Alheimsdóttur sem er handhafi Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabókina Hvalbak. Maó er pólsk uppruna, býr á Íslandi, starfar meðal annars sem fjallaleiðsögumaður og skrifar bókmenntir á íslensku. Guðmundur Andri Thorsson ræðir við okkur um Jón Thoroddsen. Hann þótti mikið efni, var á báðum áttum hvort hann ætti leggja fyrir sig skáldskap eða stjórnmál, sendi frá sér bók með prósaljóðum sem nefnist Flugur. Jón var aðeins 26 ára þegar hann varð fyrir sporvagni í Kaupmannahöfn og lést. Flugur hafa verið endurútgefnar með eftirmála Guðmundar Andra. Við spjöllum við Eriku Fatland sem er norskur höfundur ferðabóka bækur hennar hafa náð metsölu í Noregi og verið þýddar á ein tuttugu tungumál. Meðal annarra verka nefna Landamærin en þar ferðast hún um öll ríki sem eiga landamæri Rússlandi. Í Bókum og stöðum förum við norður í Trékyllisvík á Ströndum, á slóðir þar sem meintir galdramenn voru brenndir á sinni tíð. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Söguþætti landpóstanna, Ekkert eftir Janne Teller og Lokar augum blám eftir Margréti S. Höskuldsdóttur. Óvæntur gagnrýnandi leggur okkur lið í umfjölluninni um landpóstana.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

11. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,