Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Þáttur 4 af 6

Í fjórða þætti fara Egill og Guðjón um gamla bæinn í Kaupmannahöfn, á slóðir Árna Magnússonar, Jóns Sigurðssonar, Fjölnismanna og Jóns Helgasonar. Þeir heyra af forréttindum sem Íslendingar nutu við háskólann, en líka af döprum örlögum fjölda stúdenta og bruna sem Íslendingar hafa löngum talið einn sorglegasta atburð í sögu sinni.

Frumsýnt

24. jan. 2018

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Kaupmannahöfn - höfuðborg Íslands

Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Þættir

,