• 00:01:26Flugmenn Icelandair sofna við störf
  • 00:06:34Horfur í efnahags- og atvinnumálum
  • 00:19:01Um tímann og vatnið

Kastljós

Þreyttir flugmenn, efnahagshorfur, Um tímann og vatnið

56 prósent flugmanna Icelandair segist hafa sofnað óviljandi við störf um borð á þriggja mánaða tímabili í sumar. Kastljós fjallar um þreytukönnun sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna lét gera.

Það syrtir í álinn í efnahagsmálum. Forsendur kjarasamninga hafa brostið, olíuverð hækkað og uppsagnir færist í aukana. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fór yfir efnahagshorfur.

Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd fyrir skemmstu en hún byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar. Við kynntum okkur myndina.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

2. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Þættir

,