Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar
glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram…
Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.