Fram og til baka

Hannes Óli Ágústsson leikari

Hannes Óli Ágústsson hefur komið víða við í listinni og vakið athygli fyrir mikla hæfileika, bæði í gamanleik og drama. Hannes Óli kemur í Fimmu og segir af fimm lögum sem hafa sterk tilfinningatengsl við hann. Verður Ja Ja Ding Dong þar á meðal?

Í síðari hluta þáttarins verður Leifur Geir Hafsteinsson viðmælandi en hann stendur fyrir stóru verkefni með Vestmannaeyingum í hópnum Vinir og vandamenn en þar eru fjölskyldumeðlimir Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í syngja þekkt og óþekkt eyjalög. Leifur Geir segir okkur allt um verkefnið, tónleikana og plötuna Hve dátt er hér…, sem sameinar sjaldheyrðar perlur og nýtt efni úr ríkri tónlistarhefð Vestmannaeyja.

Birt

11. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,