Bækur og staðir 2016

Möðruvellir

Egill Helgason heimsækir ólíka staði á landinu og fjallar um ritverk og höfunda sem þeim tengjast. Möðruvellir í Hörgárdal er sögufrægur staður. Þar var áður klaustur og skóli og þar felldi Skáld-Rósa hug til Páls Melsteð og orti til hans Vísur Vatnsenda Rósu sem flestir þekkja. Bjarni Thorarensen skáld var amtmaður á Möðruvöllum. Hann er talinn fyrsti íslenski rómantíkerinn, en þótti hinsvegar vera leiðinlegur embættismaður. Egill rifjar upp ljóð hans Þú nafnkunna landið og söguna af því þegar Bóluhjálmar var leiddur fyrir hann vegna þjófnaðarmáls. Þeir eiga þá hafa drukkið saman eitt kvöld, en finna lýsingar af þeim fundi í sagnaþættinum Feigur Fallandason eftir Sverri Kristjánsson sagnfræðing.

Frumsýnt

25. maí 2016

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bækur og staðir 2016

Bækur og staðir 2016

Egill Helgason tengir bækur við ýmsa staði á landinu.

,