Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Á tali hjá Hemma Gunn 25. janúar 1995

Hemmi Gunn kynnir fjölbreyttan skemmtiþátt með tónlist og spjalli. Bankakórar Íslandsbanka og Landsbanka flytja Amigos para siempre og Anna Sigurðardóttir sýnir aerobic og dans. Einnig koma fram Erlendur Eiríksson, Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð og Ingibjörg Marteinsdóttir sem syngur Ave Maria. Hemmi ræðir við gestina Jónu Dóru Karlsdóttur og Guðmund Árna Stefánsson, og sýnt er atriði úr söngleiknum Kabarett. Í lok þáttar flytja Guðrún Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson lagið Ég leita orða með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammerkór Langholtskirkju.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. janúar 1995

Birt

6. jan. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.

Þættir

,