Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Á tali hjá Hemma Gunn 12. október 1994

Hemmi Gunn kynnir fjölbreyttan skemmtiþátt með tónlist, spjalli og léttum leikjum. Hljómsveitin Vinir vors og blóma flytur lag, börn úr Leikskólanum Drafnarborg taka þátt í spjalli og Eiður Smári Guðjohnsen kemur í heimsókn þar sem sparkað er bolta í stúdíóinu. Elín Ósk Óskarsdóttir syngur aríu úr óperunni A valdi örlaganna og Hemmi teflir skák við Helga Áss Grétarsson. Þingmenn stíga á svið sem Þingmannakvintettinn og syngja My Bonnie. Í lok þáttar ræðir Hemmi við Margréti Vilhjálmsdóttur, sem flytur lagið Blikandi stjörnur með leikurum úr söngleiknum Hárið.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. október 1994.

Birt

11. nóv. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1994-1995

Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.

Þættir

,