Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
50 ár eru liðin frá því að gos hófst í Vestmannaeyjum og þúsundir íbúa voru fluttir brott af eyjunni á einni nóttu. Þessara tímamóta er minnst með viðburði í Eldheimum í Vestmannaeyjum og er Kastljós sent beint út þaðan. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson flutti ávarp en Kastljós ræddi einnig við fjölda Vestmanneyinga um upplifun þeirra af þessum stóra viðburði.
Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundar: Ævar Örn Jósepsson og Jón Svanur Jóhannsson. Dómari: Ævar Örn Jósepsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Spaugstofumennirnir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason bregða á leik. Þáttaröð frá 1996. Stjórn upptöku: Sigurður Snæberg Jónsson.
Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Í þættinum er fjallað um mannamyndir og upphafsár ljósmyndunar á Íslandi. Við skoðum feril íslensku frumkvöðlanna, Sigfúsar Eymundssonar, Nicoline Weywadt og Önnu Schiöth. Það kemur á óvart að á Austfjörðum lagði fjöldi kvenna stund á ljósmyndun. Á Akureyri merkti Anna Schiöth ljósmyndir sínar eiginmanni sínum Henrik. Mannamyndir á nýrri öld gefa okkur innsýn inn í hvernig arfleifð mannamynda hefur viðhaldist og þróast.
Finnlands-sænskir lífsstílsþættir þar sem meðal annars er fjallað um matreiðslu, garðyrkju og föndur.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Árni Scheving var einn helsti djasslistamaður þjóðarinnar. Hann hóf ungur að starfa sem hljómlistarmaður og lék með öllum helstu hljómsveitum og tónlistarmönnum þjóðarinnar á öllum sviðum tónlistar. Flest hljóðfæri léku í höndum hans en víbrafónninn var þó höfuðhljóðfærið, einkum í djasstónlist.
Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Páll býr með fjölskyldu sinni í notalegu bresku smáþorpi og lendir í ýmsum póstburðartengdum ævintýrum.
Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist og njóta tónanna sem óma um Hljómbæ.
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Við ræddum um fúsk í byggingariðnaði og spurðum tvo sérfræðinga hvernig standi á því að svona illa gangi að byggja vatnsheld hús á Íslandi.
Fæst pæla í bættu aðgengi fyrir fatlaða fyrr en þau eða einhver í kringum þau lendir í þeirri stöðu að þurfa á því að halda. Valgerður Jónsdóttir lenti í slysi fyrir tveimur árum sem breytti öllu á örskotsstundu en hún er nú að venjast lífinu í breyttum aðstæðum.
Það eru dramatík og átök en líka dans og söngur í verkinu Marat/Sade sem mörg þekktustu andlit og raddir þjóðarinnar flytja nú í Borgarleikhúsinu.
Bein útsending frá Bessastöðum þar sem forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin. Stjórn útsendingar: Jón Víðir Hauksson.
Sænskir heimildarþættir frá 2021. Stór hluti daglegs lífs okkar er stafrænn - en hversu örugg er staða okkar í stafrænum heimi? Í þáttunum taka þrautreyndir tölvuhakkarar sig til og brjótast inn í tölvur hjá einstaklingum og fyrirtækjum, bara til að sýna okkur hinum hversu sáraeinfalt það er að komast yfir gögn - og líf - fólks með því að hakka tilveru þeirra.
Gamanþættir frá BBC. Leslie Winner ber ekki alveg nafn með rentu því þrátt fyrir að vera óbilandi bjartsýnismaður lendir hann sífellt í óheppilegum uppákomum. Aðalhlutverk: Spencer Jones, Lucy Pearman og Shaun Williamsson.
Ástralskir spennuþættir. Meghan er vinsæll áhrifavaldur á samfélagsmiðlum en Agatha vinafár hilluraðari í stórmarkaði. Þær eiga fátt sameiginlegt annað en eitt eldfimt leyndarmál sem gæti steypt allri þeirra tilveru í glötun og að vera báðar komnar á steypirinn. Þegar þær hittast fyrir tilviljun fer af stað atburðarás með ófyrirséðum afleiðingum. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sjötta þáttaröðin af þessum vinsæla spennumyndaflokki frá BBC um lögreglumann sem ásamt samstarfskonu sinni er falið að rannsaka spillingu innan lögreglunnar. Þættirnir hafa unnið til ýmissa verðlauna og endurtekið slegið áhorfsmet í heimalandi sínu, Bretlandi. Leikarar: Martin Compston, Vicky McClure og Adrian Dunbar. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.