15:50
Ímynd
Svipur þjóðar
Ímynd

Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.

Í þættinum er fjallað um mannamyndir og upphafsár ljósmyndunar á Íslandi. Við skoðum feril íslensku frumkvöðlanna, Sigfúsar Eymundssonar, Nicoline Weywadt og Önnu Schiöth. Það kemur á óvart að á Austfjörðum lagði fjöldi kvenna stund á ljósmyndun. Á Akureyri merkti Anna Schiöth ljósmyndir sínar eiginmanni sínum Henrik. Mannamyndir á nýrri öld gefa okkur innsýn inn í hvernig arfleifð mannamynda hefur viðhaldist og þróast.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 29 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,