19:35
Kastljós
Fúsk í byggingariðnaði, í hjólastól eftir slys, leikverkið Marat/Sade
Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Við ræddum um fúsk í byggingariðnaði og spurðum tvo sérfræðinga hvernig standi á því að svona illa gangi að byggja vatnsheld hús á Íslandi.

Fæst pæla í bættu aðgengi fyrir fatlaða fyrr en þau eða einhver í kringum þau lendir í þeirri stöðu að þurfa á því að halda. Valgerður Jónsdóttir lenti í slysi fyrir tveimur árum sem breytti öllu á örskotsstundu en hún er nú að venjast lífinu í breyttum aðstæðum.

Það eru dramatík og átök en líka dans og söngur í verkinu Marat/Sade sem mörg þekktustu andlit og raddir þjóðarinnar flytja nú í Borgarleikhúsinu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
Dagskrárliður er textaður.
Bein útsending.
,