
Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.


Ibbi er sjálfsöruggur, forvitinn og hefur ótrúlegan áhuga flest öllu því sem fyrirfinnst í daglegu lífi. Hann er mjög hjálpsamur og hleypur iðulega undir bagga með öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda.

Hvernig ætli lífið sé fyrir mann sem er bara 15 cm hár?

Það er aðfangadagur í leikskólanum hjá Teiti en vonskuveður verður til þess að Teitur og vinir hans komast ekki heim.
Hvernig verða þessi jól?

Molang er lítil kanínustelpa sem er í miklu jólaskapi.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Þriðja þáttaröðin um vinalega hundinn Sám og krílin sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.

Símon er hress og skemmtileg kanína sem tekst á við alls kyns áskoranir og lærir af mistökum sínum.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Hreinn og vinir hans leggjast í leiðangur til að útvega sér stærri jólasokka en öll plön fara á hliðina þegar Teitur týnist. Nú reynir á Hrein að bjarga Teiti frá því að verða jólapakki.

Bresk teiknimynd um jólahald hjá Móla moldvörpu og rottunni Rotta, söguhetjum myndaflokksins Þyts í laufi.

Jólastund snjóbarnanna er ekta jólaævintýri með völdum jólasögum eftir nokkra af helstu rithöfundum Norðurlandanna. Astrid Lindgren, Tove Jansson H.C. Andersen og fleiri fara með okkur í ævingtýralegt ferðalag fyrir alla fjölskylduna og auðvitað eru íslensku jólasveinarnir með. Leikstjóri íslensku sögunnar er Gunnar Karlson. Höfundur er Jóhann Ævar Grímsson og framleiðandi er Haukur Sigurjónsson.

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, gera góðverk og óvart skemmdarverk. Þau leysa ráðgátu um grunsamlegan nágranna og hjálpa hælisleitendum á flótta, leita aðstoðar spákonu sem á kristalskúlu, fást við nágranna sem á snák og eltast við jólasvein sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir og ILmur Kristjánsdóttir. Meðal leikenda eru: Kría Burgess, Gunnar Erik Snorrason, Birta Hall, Ægir Chang Hlésson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirssdóttir, Jörundur Ragnarsson og Harpa Arnardóttir.
Randalín og Mundi finna ráð við fýlunni af kæstri skötu og átta sig á að þegar vináttan verður flókin er best að ræða
málin.

Norsk jólamynd fyrir alla fjölskylduna byggð á sögu eftir Alf Prøysen. Myndin segir frá smiði sem rekst óvænt á jólasveininn og þeir ákveða að skipta um hlutverk. Úr verður ógleymanlegt aðfangadagskvöld fyrir fjölskyldur þeirra beggja. Leikstjóri: Terje Rangnes. Aðalhlutverk: Trond Espen Seim, Anders Baasmo Christiansen og Ingeborg Raustøl.

Þættir fyrir alla fjölskylduna sem fjalla um fólkið sem hjálpar okkur hinum að komast í jólaskapið. Það eru til dæmis þau sem hlaupa í skarðið fyrir jólasveinana þegar þeir eru vant við látnir, fólkið sem heldur jólaböllin, ber út póstinn og föndrar skrautið, svo fátt eitt sé nefnt.
Velkomin í aðfangadagspartí heim til Bjartmars Guðlaugssonar þar sem aðstoðarmaður Stúfs mætir með harmonikkuna sína. Gleðileg jól.

Sígildir breskir gamanþættir frá árunum 1990-1995 um ævintýri hins seinheppna herra Bean. Aðalhlutverk: Rowan Atkinson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Veðurfréttir.

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, gera góðverk og óvart skemmdarverk. Þau leysa ráðgátu um grunsamlegan nágranna og hjálpa hælisleitendum á flótta, leita aðstoðar spákonu sem á kristalskúlu, fást við nágranna sem á snák og eltast við jólasvein sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir og ILmur Kristjánsdóttir. Meðal leikenda eru: Kría Burgess, Gunnar Erik Snorrason, Birta Hall, Ægir Chang Hlésson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirssdóttir, Jörundur Ragnarsson og Harpa Arnardóttir.
Nágrannakærleikurinn er aldrei mikilvægari en á jólunum og jólaboð Fatímu tekur óvænta stefnu, en hvar er snjórinn?

Þorri og Þura eru að undirbúa jólin. Þegar afi Þorra þarf að bregða sér frá biður hann þau að passa jólakristalinn sem er uppspretta allrar jólagleði í öllum heiminum. En það slökknar á honum. Þorri og Þura leggja af stað í ævintýraferð til að kveikja aftur á kristalnum og finna jólagleði í hjartanu.
Leiksýnin eftir leikhópinn Miðnætti. Leikstjóri: Sara Martí
Leikarar: Agnes Wild, Sigrún Harðardóttir og Sveinn Óskar Ásbjörnsson

Gullfalleg teiknimynd án orða um snjókarl sem lifnar við og hrífur vin sinn með sér á vit ævintýra. Saman ferðast þeir til norðurpólsins þar sem þeir hitta fyrir sjálfan jólasveininn.

Talsett teiknimynd frá 2011 um íkornann Alvin og félaga hans sem njóta lífsins á skemmtiferðaskipi í góðu yfirlæti. Fríið tekur óvænta stefnu þegar þeir fara óvart fyrir borð og rekur á land á eyðieyju.

Helgi Skúlason les kvæðið og Sigríður Ella Magnúsdóttir syngur ásamt kór Öldutúnsskóla. Upptaka frá 1986.

Kvikmynd frá 2020 um Alice, einrænan rithöfund sem býr í suðurhluta Englands á tímum seinni heimsstyrjaldar. Dag einn er henni gert að taka að sér ungan dreng frá London að nafni Frank, þvert á vilja hennar. Fljótlega kemst hún þó að því að þau eiga meira sameiginlegt en hún hélt í fyrstu. Leikstjóri: Jessica Swale. Aðalhlutverk: Gemma Arterton, Lucas Bond og Gugu Mbatha-Raw.

Á jólum er rými fyrir alla og prestar Fríkirkjunnar í Reykjavík hugleiða jólahald og fjölmenningu, og fólk úr ýmsum trúarhefðum flytur þjóðinni jólakveðjur. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson koma fram, ásamt valinkunnu tónlistarfólki í tónlistarveislu frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Einnig koma fram Sönghópurinn við Tjörnina, hljómsveitin Mantra, strengjakvartett og landsþekktir einleikarar. Umsjón tónlistar: Gunnar Gunnarsson. Dagskrárgerð Eggert Gunnarsson.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands flytur hugvekju í helgistund í Skálholtskirkju á jólanótt. Skálholtskórinn og barnakór syngja undir stjórn Jóns Bjarnasonar organista. Jóhann Stefánsson leikur á trompet. Ritningarlestrar jólanæturinnar og bænir lesa vígslubiskup í Skálholti, sóknarprestur, fulltrúar safnaðarins og ungmenni. Upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.

Áströlsk kvikmynd frá 2020 um Samönthu Bloom, þriggja barna móður sem lamast eftir slys og á erfitt með að aðlagast nýjum veruleika. Dag einn koma synir hennar með særðan fugl inn á heimilið og þau taka að sér að hjúkra honum. Með tímanum hefur fuglinn áhrif á alla meðlimi fjölskyldunnar. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum. Leikstjóri: Glendyn Ivin. Aðalhlutverk: Naomi Watts, Griffin Murray-Johnston og Andrew Lincoln.

Bresk sannsöguleg gamanmynd frá 2016 með Meryl Streep í hlutverki hefðarfrúarinnar Florence Foster Jenkins sem er staðráðin í að láta draum sinn um að verða óperusöngkona rætast þrátt fyrir að hafa litla sem enga sönghæfileika. Leikstjóri: Stephen Frears. Önnur hlutverk: Hugh Grant, Simon Helberg og Rebecca Ferguson.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Lottó-útdráttur vikunnar.


Teiknimynd frá 2011 um íkornann Alvin og félaga hans sem njóta lífsins á skemmtiferðaskipi í góðu yfirlæti. Fríið tekur óvænta stefnu þegar þeir fara óvart fyrir borð og rekur á land á eyðieyju.
Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands flytur hugvekju í helgistund í Skálholtskirkju á jólanótt. Skálholtskórinn og barnakór syngja undir stjórn Jóns Bjarnasonar organista. Jóhann Stefánsson leikur á trompet. Ritningarlestrar jólanæturinnar og bænir lesa vígslubiskup í Skálholti, sóknarprestur, fulltrúar safnaðarins og ungmenni. Upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.