11:00
Randalín og Mundi: Dagar í desember
23. Vond lykt

Vinirnir Randalín og Mundi lenda í miklum ævintýrum í jólamánuðinum, gera góðverk og óvart skemmdarverk. Þau leysa ráðgátu um grunsamlegan nágranna og hjálpa hælisleitendum á flótta, leita aðstoðar spákonu sem á kristalskúlu, fást við nágranna sem á snák og eltast við jólasvein sem dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Leikstjórn: Silja Hauksdóttir og ILmur Kristjánsdóttir. Meðal leikenda eru: Kría Burgess, Gunnar Erik Snorrason, Birta Hall, Ægir Chang Hlésson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Saga Garðarsdóttir, Katla Margrét Þorgeirssdóttir, Jörundur Ragnarsson og Harpa Arnardóttir.
Randalín og Mundi finna ráð við fýlunni af kæstri skötu og átta sig á að þegar vináttan verður flókin er best að ræða
málin.
Var aðgengilegt til 24. desember 2023.
Lengd: 10 mín.
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.