10:55
Vikan með Gísla Marteini
18. september 2026
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi, Hilmar Guðjónsson og Silja Sóley Birgisdóttir.
Berglind Festival færir landsmönnum Fréttir Vikunnar ásamt Sölku Gústafs, sem er fréttamaður á vettvangi. Berglind fékk einnig Daða Má, fjármálaráðherra til sín.
YUNGAMLI og SVARTI fluttu smell sumarsins, lagið Pungur á klúbbnum.
Ólafur Sveinn Jóhannesson var með Sögu til næsta bæjar.
Quarashi lokar þættinum með blöndu af lögunum Stun Gun og Mr.Jinx.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 4 mín.
- Endursýnt
