Undir Eigernum
Hópur Íslendinga heldur í létta hlaupa- og gönguferð um stórbrotið fjalllendi Sviss. Farið er með lítinn farangur milli fjallaskála og leiðin liggur meðal annars undir hinum sögufræga…
Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir og rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson slást í för um eitt fjölbreyttasta landslag íslenska hálendisins. Gengið er um Strútssvæðið, Hólmsárlón þverað á léttum göngubátum og að lokum hjólað yfir Mælifellssand. Ferðin reynir á ólíka færni og úthald en leiðir hópinn um óvenjulegt samspil eldfjalla, jökulvatns og auðna. Hér verða ferðalangarnir að laga sig að landinu og skipta um farartæki eftir því sem leiðin krefst.

Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.