
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Ein umtalaðasta kvikmynd ársins, Digger, verður krufin af kvikmyndagagnrýnendum Miðstöðvarinnar sem að þessu sinni eru Hugleikur Dagsson og Brynja Hjálmsdóttir. Þá fjalla þau einnig um þættina Window's Bay á streymisveitunni Apple TV+ sem nú er loksins fáanleg á Íslandi.
Er tónlistarmyndbandið dautt? Við könnum stöðu tónlistarmyndbandsins í nútímanum þegar sjónvarpsstöðvar á borð við MTV og Popp Tíví eru þagnaðar.
Vinkonurnar og hlaðvarpsstjórendurnir Nadine Guðrún Yagi og Þórhildur Þorkelsdóttir koma og segja frá Eftirmálum og Öðrum málum. Þá taka þær þátt í spurningakeppninni og mæla með efni sem þær eru að horfa eða hlusta á.
- Dagskrárliðurinn er textaður