22:45
Pabbahelgar (6 af 6)
Íslensk þáttaröð um Karen, 38 ára hjónabandsráðgjafa og þriggja barna móður, sem stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Hún á erfitt með að fyrirgefa eiginmanninum en það versta sem hún getur hugsað sér eru svokallaðar pabbahelgar. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Framleiðsla: Zik Zak kvikmyndir og Ungar kvikmyndafélag. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Karen og Matti rekast „óvænt“ hvort á annað með börnin til að upplifa gamla góða fjölskyldulífið. Karen þarf að ákveða hvað hún raunverulega vill.
Aðgengilegt til: 14. nóvember 2026
Lengd: 43 mín.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
