21:05
Úti III (2 af 6)
Stóra-Fjallabaksleiðin

Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.

Hópur hlaupara fer milli fjallaskála eftir Stóru-Fjallabaksleiðinni, lítt þekktri en einni glæsilegustu langleið íslenska hálendisins. Leiðin liggur um svartar sandauðnir, litskrúðug fjöll, gróðurvinjar og víðáttur þar sem veður og færð getur breyst á svipstundu.

Er aðgengilegt til 25. nóvember 2026.
Lengd: 20 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,