Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB fer fram á laugardag. Í þætti kvöldsins kynntum við okkur sjónarmið fólks sem ætlar að segja já. Í gærkvöldi fjölluðum við um rökin fyrir því að segja nei við því að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Kastljós kastaði hlutkesti í votta viðurvist um hvora hliðina yrði fjallað fyrst. Niðurstaðan var að byrja á nei-rökum. Þessi þáttur fjallar aftur á móti um já-rökin.

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1993. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Álfheiður Ingadóttir. Sigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti keppa lið Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands til úrslita. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Ágúst Hauksson, Ólafur Jóhannes Einarsson og Sveinn H. Guðmarsson. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Finnur Þór Birgisson, Haukur Eggertsson og Sigurður Kári Kristjánsson.

Sænsk þáttaröð frá 2019 þar sem tíu þátttakendur reyna að komast af í langvarandi rafmagnsleysi. Hversu vel erum við sem samfélag undirbúin fyrir óvænt neyðarástand, til dæmis af völdum náttúruhamfara?
Finnskir þættir um Nooa, trans mann sem þráir að eignast barn og ákveður að hefja tæknifrjóvgunarferli. Á sama tíma og hann glímir við tilfinningasveiflurnar sem fylgja hormónameðferðinni þarf hann að takast á við fordóma samfélagsins.
Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Börn og barnamenning hafa alltaf skipað stóran sess í dagskrá sjónvarpsins. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir kíkja á valið myndefni af börnum úr safni sjónvarpsins og kynna sér líf barna eins og það hefur verið fest á filmu síðan sjónvarpið hóf útsendingar sínar.
Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.


Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
Tveir strákar hjóla um landið og hafa meðferðis forláta tölvu sem segir þeim allt um þá staði sem þeir koma á. Leikið efni frá 2018.
Handrit: Íris Stefanía Skúladóttir.
Hlutverk ferðalanga: Jóhann Ingi Skúlason og Emil Örn Kristjánsson.
Rödd tölvu: Íris Stefanía Skúladóttir.
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Selma, Kalli, Jói, Ella og Víkingurinn leysa gátu armbandsins. Töfrar leiða þau að dularfullu leyniherbergi í Þjóðminjasafninu þar sem ný áskorun birtist þeim.

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Sænsk þáttaröð þar sem fylgst er með brúðkaupsljósmyndurum mynda ástfangin pör á þessum miklu tímamótum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Umræðuþáttur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að ESB. Já- og nei-fylkingarnar mæta til að ræða um valkostina í atkvæðagreiðslunni.

Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Hópur hlaupara fer milli fjallaskála eftir Stóru-Fjallabaksleiðinni, lítt þekktri en einni glæsilegustu langleið íslenska hálendisins. Leiðin liggur um svartar sandauðnir, litskrúðug fjöll, gróðurvinjar og víðáttur þar sem veður og færð getur breyst á svipstundu.
Norsk leikin þáttaröð frá 2026. Sérnámslæknarnir Petra, Kissy, Samuel og Joakim fóta sig í nýju starfi á sjúkrahúsi. Saman takast þau á við langa og krefjandi vinnudaga sem tengir þau órjúfanlegum böndum. Aðalhlutverk: Elpida Stojcevska, Sofia Tjelta og Deniz Kaya. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Leikin norsk þáttaröð frá 2018 sem gerist í Stafangri við lok sjöunda áratugar síðustu aldar og segir frá breytingunum sem urðu í samfélaginu þegar olía fannst í sjónum úti fyrir bænum og norska olíuævintýrið hófst. Meðal leikenda eru Anne Regine Ellingsæter, Amund Harboe, Bart Edwards, Malene Wadel og Pia Tjelta.
Þriðja þáttaröð þessara pólsku spennuþátta um menntaskólakennarann Pawel Zawadzki. Þegar nemandi deyr í siglingu á vegnum skólans beinast spjótin að skipstjóranum, Bogdan, sem er faðir Pawels. Pawel er sannfærður um sakleysi föður síns en rannsóknin dregur ýmis leyndarmál fram í dagsljósið. Aðalhlutverk: Maciej Stuhr, Katarzyna Dabrowska og Roma Gasiorowska. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Umræðuþáttur vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að ESB. Já- og nei-fylkingarnar mæta til að ræða um valkostina í atkvæðagreiðslunni.