16:05
Uppskriftabókin (5 af 6)
Pylsa, Heiðmörk og sveppir
Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Kristínu sem kennir okkur að búa til pylsur og rjómalagað hvítkál. Einnig hittir hún Ásu sem fræðir hana um sveppatínslu og Solla kennir okkur að nota sveppi í staðinn fyrir kjötáferð í matargerð.
Er aðgengilegt til 02. september 2027.
Lengd: 44 mín.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.
