20:10
Með okkar augum (2 af 6)

Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Í þessum þætti tökum við viðtal við Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra. Við fáum að smakka á því besta af borðum kokkalandsliðs Íslands og spókum okkur í einum elsta kirkjugarði landsins. Við sýnum frá opnun sýningar fatlaðra listamanna á Samúelssafni í Selárdal á Vestfjörðum og tökum sporin með djassballettskóla Báru.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 31 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,