
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Hvað er kontrapunktur, hvað er prelúdía og hvað er fúga? Þessum mikilvægu spurningum er svarað í Útúrdúr að þessu sinni. Farið er ofan í saumana á einni prelúdíu og einni fúgu úr frægu safni Jóhanns Sebastíans Bachs og Atli Ingólfsson tónskáld semur ódauðlega fúgu upp úr sívinsælu íslensku popplagi. Fram komu: Atli Ingólfsson, Paul Jacobs, Víkingur Heiðar Ólafsson, Halla Magnúsdóttir.

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.
Heimildarþættir þar sem fjallað er um ýmislegt markvert úr heimi íslenskrar kvikmyndagerðar. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Í tilefni af að Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar lýsa sjö leikstjórar og nánir samstarfsmenn Sigurðar Sverris eiginleikum hans og samstarfinu við hann í gegnum árin. Sýnd eru fjölmörg brot úr þeim kvikmyndum þar sem Sigurður Sverrir annaðist myndatöku. Einnig er rætt við Sigurð Sverri um kjarnann í starfi kvikmyndatökumannsins.
Íslensk heimildamynd frá 2020 eftir Björn B. Björnsson. Árið 1973 fór fram lögreglurannsókn á hver hefði stolið einu verðmætasta umslagi í heimi frá Kiðjabergi í Grímsnesi. Þetta umslag, sem er með mörgum sjaldgæfum frímerkjum, er kallað Biblíubréfið, en sænskur greifi er eigandi þess í dag. Lögreglu tókst ekki að upplýsa málið á sínum tíma en í myndinni opinberar frímerkjakaupmaður loks leyndarmálið um hver stóð á bak við sölu bréfsins úr landi. Leyndarmálið er mynd um rannsókn sem upplýsir þetta gamla sakamál.
Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.
Eftir niðurlægingu og tímabundna niðurfellingu liðsins er landsliðið endurreist. Ný kynslóð mætir til leiks, gömlu kempurnar snúa aftur og stelpurnar fá loksins að stíga á völlinn í Laugardal með ótrúlegum árangri.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Tólfta þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
Dönsk heimildarþáttaröð um áhrifavaldana og parið Morten og Fredrik sem dreymir um að stofna fjölskyldu og eignast börn. Dag einn hefur Nanna samband við þá og býðst til að ganga með barn fyrir þá eftir að hafa fylgt þeim á samfélagsmiðlum. Þau ákveða að leggja af stað í ferðalag sem breytir lífi þeirra allra.
Heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Þroskasaga tónskálds sem aldrei fór í tónlistarskóla. Mörg vinsælustu lög síðustu áratuga eru frá Gunnari komin: Bláu augun þín, Þú og ég, Gaggó Vest, Vetrarsól, Þitt fyrsta bros og þannig mætti lengi telja. Árið 2005 voru hljóðrituð lög hans orðin 500 og síðan hefur bæst við. Á síðari árum hefur hann samið hljómsveitarverk og kórverk í klassískum stíl, enn fremur óperu sem þykir marka tímamót í íslenskri tónlistarsögu.
Gunnar Þórðarson vakti fyrst athygli í Hljómum frá Keflavík. Átján ára samdi hann Bláu augun þín og hélt áfram að semja tónlist fyrir Trúbrot, Ðe Lónlí Blú Bojs, Sléttuúlfana og Ríó, að Hljómum sjálfum ógleymdum. Hann hefur verið afkastamikill upptökustjóri og unnið að fjölda hljómplatna fyrir sjálfan sig og aðra. Ferill þessa hógværa hæfileikamanns er ævintýri líkastur.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Guðrún og Ormhildur uppgötva galdrahelli þar sem þær geta framið öflugan endurreisnargaldur. En það er bara mánuður til stefnu. Þegar Álfur og menn Hallgríms nálgast ræna þær Brynhildi sem flýgur með þær af stað. Albert sleppur naumlega úr háska þegar risastór haförn kemur honum til bjargar.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Norsk fræðsluþáttaröð um hressandi tilraunir. Þeir Rune Nilson og Per Olav Alvestad láta sér detta ýmislegt misgáfulegt í hug og hrinda því yfirleitt í framkvæmd.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ævintýraleg fjölskyldumynd frá 2006 með Ben Stiller, Mickey Rooney og Dick Van Dyke í aðalhlutverkum. Larry Daley tekur við starfi næturvarðar á náttúrugripasafni New York-borgar. Á fyrstu vaktinni kemst hann að því að ekki er allt með felldu á safninu og jafnvel útdauð dýr fara á kreik eftir sólsetur. Leikstjóri: Shawn Levy.

Gamanmynd frá 2023 í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar. Sarah, framakona á fimmtugsaldri, er haldin óstjórnlegum ótta við að fljúga. Til að bjarga nýtilkomnu ástarsambandi verður hún að yfirstíga flughræðsluna og læra að sleppa tökunum. Aðalhlutverk: Lydia Leonard, Timothy Spalls og Ella Rumpf. Handritshöfundar: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, Halldór Laxness Halldórsson og Tobias Munthe.

Hrollvekjandi þættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Óhugnanlegir atburðir skekja tilveru Óðins og dóttur hans eftir að Óðinn byrjar að rannsaka áratugagömul dauðsföll á upptökuheimili fyrir unglinga. Aðalhlutverk: Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólöf Halla Jóhannesdóttir og Elín Hall. Leikstjóri: Erlingur Thoroddsen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Óðinn er einstæður faðir sem reynir að tengjast dóttur sinni á sama tíma og hann rannsakar dularfull dauðsföll drengja á vistheimilinu Króki á níunda áratugnum.

Rómantísk dramamynd frá 2014 með Anne Hathaway í aðalhlutverki. Fanny vill kynnast bróður sínum, Henry, betur eftir að hann lendir í bílslysi og fellur í dá. Hún heimsækir staðina þar sem hann vandi komur sínar og kynnist fljótlega tónlistarmanninum James Forester, átrúnaðargoði Henrys. Aðalhlutverk: Anne Hathaway, Johnny Flynn og Ben Rosenfield. Leikstjóri: Kate Barker-Froyland.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.