15:00
Sumarjazz á Jómfrúnni (1 af 3)
Tómas R. Einarsson og Bogomil Font

Beinar útsendingar frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.

Fyrsti listamaðurinn sem treður upp á Jómfrúartorginu er Tómas R. Einarsson. Hljómsveit hans skipa þeir Snorri Sigurðsson, Daði Birgisson og Kristofer Rodriguez Svönuson. Þá mun Bogomil Font tryggja að tónlistin hreyfi lendarnar á sólþyrstum gestum.

Er aðgengilegt til 25. september 2026.
Lengd: 2 klst.
e
Endursýnt.
Bein útsending.
,