10:25
Útúrdúr
Tilfinningar og tónminni

Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Þriðji þáttur Útúrdúrs ber yfirskriftina Brahms og Schoenberg - tilfinningar og tónminni. Í titlinum er teflt saman andstæðum sem, þegar betur er að gáð, reynast ef til vill ekki andstæður heldur þræðir í sama vef.
Er aðgengilegt til 25. september 2026.
Lengd: 47 mín.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.