
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1991. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Að þessu sinni mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Finnur Friðriksson, Jón Pálmi Óskarsson og Magnús Teitsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Snorri Einarsson, Tryggvi Helgason og Jón Yngvi Jóhannsson.

Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.

Heimildarþáttaröð þar sem læknirinn Michael Mosley rannsakar hvaða áhrif innihaldið í innkaupakörfu fólks í matvöruverslunum hefur á heilsufar þjóðar.

Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Í þessum þætti útbýr Ebba Guðný hnetusmjörsköku, salat með salatsósu og grænmetislasagna með pestói.

Fjögurra þátta röð um þá sem enn stunda hefðbundinn búskap við innanvert Ísafjarðardjúp. Saga búskapar er rakin og spáð í framtíðina á einlægan og raunsæjan hátt. Tónlistina samdi Mugison en Þóra Arnórsdóttir og Ásdís Ólafsdóttir önnuðust dagskrárgerð.

Stuttir heimildarþættir um sambönd manna og hunda.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Búi hefur áhyggjur af því hversu litlir kálhausarnir í kálhausagarðinum hans eru. Gló býðst til prófa stækkunarseyðið sitt á þeim. Búi leyfir henni að prófa, en aðeins á einn kálhaus til að byrja með. Stækkunarseyði Glóar virkar einum of vel því kálhausinn verður gríðarstór með skelfilegum afleiðingum. Gló þarf að finna mótefnið en það gæti tekið smá tíma.

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.

Fimmta þáttaröð þessara einlægu og skemmtilegu þátta þar sem fólk með þroskahömlun skoðar málefni líðandi stundar með sínum augum og spyr spurninga á sinn einstaka hátt. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Heimildarþáttaröð þar sem sveppir á Íslandi eru skoðaðir frá sjónarhorni vísinda, menningar, fagurfræði og sjálfbærni. Dagskrárgerð: Anna Þóra Steinþórsdóttir. Umsjón: Erna Kanema Mashinkila.
Fjallað er um varasama eiginleika sveppa, svo sem eitraða sveppi, sníkjusveppi og myglusveppi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, doktor í sveppafræðum, kynnir eitraða sveppi sem finnast í íslenskri náttúru. Brynja Hrafnkelsdóttir, sérfræðingur hjá Skógræktinni, sýnir sníkjusveppi sem leggjast á trjágróður. Í umfjöllun um myglusveppi er m.a. rætt við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðing.

Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.

Breskir dramaþættir frá 2024. Gabriel og Andy ættleiða sjö ára dreng og Gabriel neyðist til að horfast í augu við fortíðina og gera upp málin við föður sinn áður en hann getur sjálfur tekist föðurhlutverkið á hendur. Aðalhlutverk: Leo Harris, Sion Daniel Young og Fra Fee. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Hafdísi Magnúsdóttur bæjarstjóra hefur verið rænt og myndbandi dreift á netinu. Flóttamaður liggur illa haldinn á spítala og lögreglan vonast til þess að hann hafi svörin sem geta bjargað bæjarstjóranum. En fyrst þarf að hafa uppi á höfuðpaur Hamars Þórs.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Leiknir norskir þættir byggðir á sönnum atburðum. Vinirnir Benjamin og Elias eru 15 ára og horfa spenntir til framtíðar. Einn örlagaríkan janúardag árið 2001 breytir skelfilegur atburður öllu. Aðalhlutverk: Sam Ashraf, Emil Stenseth, Torbjørn Aamodt og Lee Boardman. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.