Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Hafdísi Magnúsdóttur bæjarstjóra hefur verið rænt og myndbandi dreift á netinu. Flóttamaður liggur illa haldinn á spítala og lögreglan vonast til þess að hann hafi svörin sem geta bjargað bæjarstjóranum. En fyrst þarf að hafa uppi á höfuðpaur Hamars Þórs.
