
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að leika við börnin sín á ströndinni og finnur fjarstýringu sem getur stjórnar tímanum! Hann skemmtir sér konunglega þangað til að fjarstýringinn eyðileggst. Hann er dauðhræddur um að börnin festist í fortíðinni og verður að laga fjarstýringuna og það strax!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Óveður og árásir Kraka eyðileggja flekann. Gústi skrímslaveiðimaður bjargar hópnum en hann hefur illt í hyggju. Hann notar þau sem beitu til að veiða Kraka. Ormhildur vingast við Kraka og bjargar honum úr gildru Gústa. Álfur slítur tengslin við Hallgrím með aðstoð Björns.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Ágúst Bent Sigbertsson, Erpur Eyvindarson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Halla Oddný Magnúsdóttir.

Aukafréttatími vegna niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga.

Matgæðingarnir í Price-fjölskyldunni töfra fram kræsingar við öll tækifæri.
Dagskrá um Guðrúnu Á. Símonar söngkonu sem var einn af mestu listamönnum þjóðarinnar um sína daga. Hún var vel menntuð í tónlist, jafnvíg á óperur og dægurtónlist, fyndin og frökk en innst inni feimin og hlý manneskja. Hún segir frá sjálfri sér, tónlistinni og köttunum sínum í viðtalsþáttum frá ýmsum tímum og syngur lög af ýmsu tagi. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara.

Norskur myndaflokkur þar sem fylgst er með venjulegu fólki sem er svo ástríðufullt í áhugamálum sínum að það liggur við brjálæði. Þáttastjórnandinn Are Sande Olsen tekur viðtöl við fólk með ótrúlegustu áhugamál og skoðar þau ofan í kjölinn.

Íslandsmót í hópfimleikum á Akranesi.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Loftsteinn hrapar í átt að jörðu og Sunna og Máni fara í leiðangur að leita að honum. Óheppilega vill til fyrir þau að loftsteinninn hrapaði í körfuna hjá Loft þar sem hann lifnar við!
Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Hljómsveitin Gulu kettirnir heldur áfram að semja sitt eigið lag og flytur svo lokaútgáfuna. Hljómsveitarmeðlimir: Aldís María Sigursveinsdóttir, Fatíma Rós Joof, Hilmir Þór Snæland Hafsteinsson og Sigurður Ingvar Þórisson. Theramín leikari: Hekla Magnúsdóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.
Sumarliði hefur tekið við heimilisfræðikennslunni og fer með nemendur sína í tímflakk, þar sem við kynnumst hinum ótrúlegustu réttum frá mismunandi tímabilum í sögunni.
Í dag búa krakkarnir til víkingabrauð og víkinga blóðbrauð! Víkingabrauð var bakað á Víkingaöld sem var frá 800-1050. Brauðið er einfalt en það var búið til úr því korni sem var til hverju sinni og vatni. Stundum var hunang sett ofan á brauðið til að bragðbæta það en öðrum stundum var dýrablóð sett í deigið til að auka næringargildið.
Þættir frá 2011 um íslenska tónlist í umsjá Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er greiningardeild Hljómskálans, sem skipuð er þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, öðru nafni Kidda í Hjálmum, og Braga Valdimar Skúlasyni í Baggalút. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar, reynt að ráða í meikdrauma, rýna í suðupotta og þræða fornar söguslóðir. Auk þess eru þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga. Rætt verður við sérfræðinga og oddvita.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2 á sama tíma.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Belgísk dramamynd frá 2022 í leikstjórn Lukas Dhont. Hinir 13 ára Leo og Remi eru bestu vinir sem verja öllum stundum saman. Þegar þeir byrja í nýjum skóla eru órjúfanleg tengsl þeirra skyndilega sett í uppnám. Aðalhlutverk: Eden Dambrine, Gustav De Waele og Émilie Dequenne. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Aukafréttatími vegna niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Heimildarþáttaröð þar sem David Attenborough kannar náttúru og dýralíf í Asíu, stærstu heimsálfu jarðar.