
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.

Fallegir teiknimyndaþættir um óvenjulega vináttu bjarnarins Ernests og músarinnar Célestine.

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt

Róbert og hressu hvolparnir í Hvolpasveitinni eru komin aftur og takast á við ný verkefni og nýja þorpara eins og þeim einum er lagið.

Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.

Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.

Teiknimyndaþættir um moldríku öndina Jóakim aðalönd, seinheppna frænda hans, Andrés önd, og félaga þeirra í Andabæ.

Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.

Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Í öðrum þætti er tekinn dálítið djarfur útúrdúr - útúrdúr aftur í aldir. Umfjöllunarefnið íslensk tónlist fyrri tíma. Þáttastjórnendurnir eftirláta sviðið þeim listamönnum sem gera tónlist liðinna tíma í íslandssögunni að tónlist okkar tíma líka. Rétt eins og með hina óheppilega nefndu klassísku tónlist gildir nefnilega hér að tónlist sem er spiluð, tónlist sem hlustað á og hrifist er af í samtímanum hlýtur að teljast samtímatónlist í einhverjum skilningi. Og við getum heitið því að þessi gamla tónlist er glæný fyrir mörgum!

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.

Þáttur um Stefán Íslandi óperusöngvara unninn úr efni í safni RÚV. Stefán hóf söngnám á Ítalíu 1930, söng þar við óperuhús um skeið en var fastráðinn við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn 1940. Þar söng hann aðaltenórhlutverk í hinum þekktustu ítölsku og frönsku óperum í hátt á þriðja áratug en hélt líka söngskemmtanir heima. Hann lítur yfir farinn veg, fjölmargir listamenn flytja tónlist honum til heiðurs og söngur hans hljómar líka. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Veiðiþættir í umsjá bræðranna Gunnars og Ásmundar Helgasona. Í þáttunum fara þeir á ýmsa veiðistaði, fá aðstoð sérfræðinga og heimafólks og veiða meðal annars ísaldarrurriða á flugu, þorsk af kajak, lax á Vesturlandi, silung á fjöllum og hákarl úr fjöru. Þeir elda allt sem þeir veiða, þó við misjafnar aðstæður og með misjöfnum árangri. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Bræðurnir kunna nú heldur betur að veiða lax og þurfa því engar ráðleggingar frá öðrum í þetta sinn - eða hvað? Nokkrar valinkunnar laxveiðiár eru heimsóttar og inni á milli fluguveiðinnar skjótast þeir í Þjórsá til að kynna sér þá aldagömlu veiðiaðferð að leggja net.

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Þorvaldur Skúlason var einn af brautryðjendum íslenskrar samtímalistar. Hann stundaði nám við listaháskóla í Osló, Kaupmannahöfn og París. Hann þótti gæddur afar máttugu formskyni, málaði í stíl kúbismans á fjórða áratugnum og síðar strangflatarlistar en í lok listferilsins voru verk hans í óhlutbundnum stíl með hringformum áberandi. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Upptaka frá tónleikum Skálmaldar þar sem sveitin flutti nýtt og eldra efni í magnaðri umgjörð Heimskautsgerðisins við Raufarhöfn haustið 2024. Tilefni tónleikanna var að vekja athygli á Heimskautsgerðinu og safna fé til að klára uppbyggingu þess.
Félagarnir og fyrrum Hraðfréttamennirnir Benni og Fannar réðu sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson frá Grindavík. Í þáttunum fáum við að fylgjast með strákunum í ævintýralegum 30 daga túr. Dagskrárgerð: Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Framleiðsla: Skot.
Breskir gamanþættir frá 2022 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.

Menningarþættir fyrir ungt fólk frá 2002-2003. Í þáttunum er m.a. fjallað um tónlist og mannlíf, kynntar ýmsar starfsgreinar og fastir liðir eins og dót og vefsíða vikunnar verða á sínum stað.
Umsjón: Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Vilhelm Anton Jónsson.
Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Hjördís Unnur Másdóttir.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Millivíddargaldrahliðið spýtir Hallgrími, Alberti, Brynhildi og Guðrúnu upp á sker á milli eyjanna tveggja. Lið Hallgríms bjargar honum og hann handtekur Albert. Guðrún kemur úr göngunum spillt af svartagaldri. Svart frost breiðist út í kringum hana þegar hún fer að Hallgrímkirkjuturni. Ormhildur, Álfur og Kisi snúa aftur til Breiðholtseyju í þyrlu. Haförninn bjargar þyrlunni. Í fjarska sjá þau Guðrúnu verða altekna af myrkri.

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Sænskir þættir frá 2021. Fjölskyldur prófa alls kyns afþreyingu í von um að finna áhugamál sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Norsk gamanmynd fyrir alla fjölskylduna frá 2023 um hina 12 ára gömlu Minu. Þegar hiphop-dansarinn Edvin byrjar í skólanum hennar verður hún yfir sig ástfangin. Edvin vill setja saman danshóp til að taka þátt í keppni í bænum og hún ákveður að mæta í áheyrnarprufu, þrátt fyrir að kunna alls ekki að dansa. Leikstjóri: Aurora Gossé. Aðalhlutverk: Liv Elvira Kippersund Larsson, Sturla Harbitz og Viljar Knutsen Bjaadal.

Rómantísk gamanmynd frá 2018 með Jennifer Lopez í aðalhlutverki. Maya Vargas starfar í stórmarkaði og finnst hún ekki hljóta framgang í starfi vegna þess að hún hefur ekki háskólagráðu. Þegar hún fær fyrir misskilning stjórnunarstöðu hjá stóru fyrirtæki á Manhattan fær hún loksins tækifæri til að sýna hvað í henni býr. Leikstjóri: Peter Segal. Meðal leikenda eru Vanessa Hudgens, Leah Remini og Treat Williams.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Ekvador og Curaçao á HM karla í fótbolta.

Breskur spennumyndaflokkur um rannsóknarlögreglumanninn Max Arnold sem býr í gömlum húsbáti en starfar í einu efnaðasta hverfi Lundúna. Þó ekki skorti auðæfin í Chelsea er þar engu að síður nóg um morð og önnur myrkraverk. Aðalhlutverk: Adrian Scarborough, Peter Bankolé og Lucy Phelps. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Kona á lúxusdvalarheimili fyrir aldraða deyr á dularfullan hátt og grunur beinist að starfsfólki og íbúum dvalarheimilisins. Spenna innan fjölskyldu hinnar látnu bendir til þess að sökin liggi annars staðar.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Túnis og Japan á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Hollands og Svíþjóðar á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Hollands og Svíþjóðar á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Uppgjör á leik Hollands og Svíþjóðar á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Þýskalands og Fílabeinsstrandarinnar á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Þýskalands og Fílabeinsstrandarinnar á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.