13:30
Íslendingar
Þorvaldur Skúlason

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Þorvaldur Skúlason var einn af brautryðjendum íslenskrar samtímalistar. Hann stundaði nám við listaháskóla í Osló, Kaupmannahöfn og París. Hann þótti gæddur afar máttugu formskyni, málaði í stíl kúbismans á fjórða áratugnum og síðar strangflatarlistar en í lok listferilsins voru verk hans í óhlutbundnum stíl með hringformum áberandi. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,