
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í fyrsta þætti Miðstöðvarinnar heimsækjum við Friðrik Dór sem sýnir á sér nýja listræna hlið í fyrsta skipti opinberlega.
Lovísa Rut, útvarpskona á Rás 2, og Sandra Barilli, framleiðandi og skemmtikraftur, kíkja í myndverið og fara yfir stærstu tónlistarviðburði ársins. Hvað á fólk að upplifa í ár?
Þátturinn endar svo á Ágústi Þór Brynjarssyni sem sló í gegn í Söngvakeppninni í fyrra. Við förum í heimsókn á Hrafnagil í Eyjafirði þar sem Ágúst býr og svo flytur hann fyrir okkur nýtt lag ásamt tónlistarkonunni Unu Torfa.