13:30
Kastljós
Átröskun og leiðangur Artemis II

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Tilfellum átröskunar hjá ungum stelpum hefur fjölgað undanfarna mánuði, það sýna tölur bæði frá BUGL og átröskunarteymi Landspítala. Mikið bakslag hefur orðið. Samfélagsmiðlar og aukin umræða um þyngdarstjórnun og offitu eru talin hafa neikvæð áhrif á líkamsímynd.

Geimfararnir fjórir í geimfarinu Integrity eru nú á leið til jarðar eftir að hafa farið hringinn í kringum tunglið og virt fyrir sér bakhlið þess, sem afar fáar manneskjur hafa augum litið. Við ræðum við Sævar Helga Bragason um leiðangurinn Artemis II.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 23 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,