20:45
Perlur sjónvarpsins
Horfinn heimur

Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Margt sem þótti sjálfsagt á árum áður er horfið í dag. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir skoða ýmis myndbrot úr safni sjónvarpsins sem tengjast hlutum eða heimi sem er horfinn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 26 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,