
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Breskar spennumyndir fyrir alla fjölskylduna um ævintýri fjögurra krakka og hundsins þeirra. Myndirnar eru lauslega byggðar á Fimm-bókunum eftir rithöfundinn Enid Blyton. Aðalhlutverk: Diaana Babnicova, Kit Rakusen, Flora Jacoby Richardson og Elliott Rose.
Félagarnir fimm finna særðan flugmann sem hefur misst minnið eftir flugslys. Krakkarnir hefja rannsókn á málinu en lenda í miklum háska þegar í ljós kemur hverjir eru á eftir flugmanninum.
Íslensk kvikmynd frá 2019 í leikstjórn Silju Hauksdóttur. Rannveig stendur á persónunlegum tímamótum samhliða því að eiga í basli með táningsdóttur sína. Líf mæðgnanna breytist skyndilega þegar aðkomumaður að sunnan flytur í þorpið. Aðalhlutverk: Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Donna Cruz, Þorsteinn Bachmann og Björn Hlynur Haraldsson.
Hrollvekjandi þættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur. Óhugnanlegir atburðir skekja tilveru Óðins og dóttur hans eftir að Óðinn byrjar að rannsaka áratugagömul dauðsföll á upptökuheimili fyrir unglinga. Aðalhlutverk: Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólöf Halla Jóhannesdóttir og Elín Hall. Leikstjóri: Erlingur Thoroddsen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Óðinn heldur áfram að bægja frá sér vandamálunum heima fyrir. Hann kafar dýpra í ráðgátuna á Króki sem verður sífellt flóknari eftir því sem hann uppgötvar meira.
Sannsöguleg kvikmynd frá 2022 í leikstjórn Ali Abbasi. Rannsóknarblaðakona fléttast inn í vef raðmorðingja í heilögu borginni Mashhad í Íran þar sem vændiskonur eru fórnarlömb hrottafenginna árása. Aðalhlutverk: Zar Amir-Ebrahimi, Mehdi Bajestani og Arash Ashtiani. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hallgrímur lærir að nota verndargrip Alberts. Brynhildur gerir við gamlan jeppa í verksmiðjunni. Kisi nær dularfullri flautu af ærslafullum púka. Ormhildur yfirbugar púkann og notar flautuna til að óska sér og hópnum í galdrahellinn. Smávegis mismæli senda þau í rangan helli. Álfur og önnur handbendi Hallgríms kljást við skeldýrin.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
An Icelandic film from 2019. A suburban mother grapples with career dissatisfaction and family tensions while her marriage crumbles. The arrival of a mysterious new neighbor forces her to confront unexpected changes in her life. Starring: Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Donna Cruz, Þorsteinn Bachmann and Björn Hlynur Haraldsson.