Ógnir á Prospect-hótelinu
Gamall vinur setur sig í samband við félagana fimm og biður þá um að leysa dularfullt morðmál. Það er hins vegar einn hængur á; morðið hefur ekki enn verið framið.

Breskar spennumyndir fyrir alla fjölskylduna um ævintýri fjögurra krakka og hundsins þeirra. Myndirnar eru lauslega byggðar á Fimm-bókunum eftir rithöfundinn Enid Blyton. Aðalhlutverk: Diaana Babnicova, Kit Rakusen, Flora Jacoby Richardson og Elliott Rose.