
Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.
Höfundur:
Laila Margrét Arnþórsdóttir
Leikur:
Tinna: Kolbrún Völkudóttir
Kata kónguló: Jan Fiurasek
Talsetning:
Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir
Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir
Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill munum við líka læra svolítið af táknmáli. Að þessu sinni er Kata kónguló í heimsókn hjá Tinnu þegar hún fær sendan pakka. Í pakkanum er töfratúlípani sem hægt er að fljúga á.