20:15
Myndasögur (10 af 10)
Gunborg svippar

Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf.

Ljósmyndin sem fjallað er um er af Gunborgu Sigmundsdóttur að sippa fyrir framan heimili sitt á Akureyri árið 1963. Eiginmaður Gunborgar, Gunnlaugur P. Sigmundsson, tók myndina. Dætur þeirra, Ásdís og Kristín Gunnlaugsdætur, rifja upp þennan atburð og það sem gekk á í lífi fjölskyldunnar á þessum tíma.

Er aðgengilegt til 06. maí 2026.
Lengd: 16 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,