
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.
Þættir frá 2011 þar sem fjallað er um klassíska- og samtímatónlist í víðum skilningi og leitast við að kynna hana á skemmtilegan, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt. Tónlistarfólk kemur saman í stúdíói, spjallar um tónverk og leikur þau líka. Þá er rætt við sérfræðinga og áhugamenn úr ýmsum áttum. Umsjónarmenn eru Víkingur Heiðar Ólafsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson og Viðar Víkingsson.
Eftir að hafa dvalið í upphæðum söngsins í síðasta þætti er kominn tími til að stíga niður á jörðina. Jafnvel ofan í jörðina! Við fræðumst um leyndardóma hljóðfærasmíðinnar, siðspillandi áhrif hljóðfæra og hlýðum á tónlist sem á að hljóma falskt.

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.
Íslensk heimildarmynd um tónlistarkonuna Ellen Kristjánsdóttur þar sem við kynnumst uppvexti hennar, fjölskyldu, lífi og list. Við fylgjum Ellen eftir þegar hún heimsækir bernskuslóðir sínar í Kaliforníu í Bandaríkjunum og gerir upp fortíðina ásamt fjölskyldu sinni. Leikstjóri: Anna Dís Ólafsdóttir. Framleiðsla: Lamina Pictures.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Gylfi Þ. Gíslason var hagfræðingur að mennt. Hann var þingmaður Alþýðuflokksins 1946 til 1978, og var á því tímabili menntamálaráðherra, iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra. Hann beitti sér fyrir heimkomu handritanna frá Danmörku 1971 og veitti þeim viðtöku fyrir hönd þjóðarinnar. Hann hafði mikið dálæti á tónlist og samdi sönglög sem hafa komið út á hljómplötum og nótum. Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins.
Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Dönsk heimildarþáttaröð um áhrifavaldana og parið Morten og Fredrik sem dreymir um að stofna fjölskyldu og eignast börn. Dag einn hefur Nanna samband við þá og býðst til að ganga með barn fyrir þá eftir að hafa fylgt þeim á samfélagsmiðlum. Þau ákveða að leggja af stað í ferðalag sem breytir lífi þeirra allra.
Beinar útsendingar frá jazztónleikum á Jómfrúnni við Lækjargötu í Reykjavík. Í 30 ár hefur veitingastaðurinn staðið fyrir jazztónleikum á Jómfrúartorginu á hverjum laugardegi yfir sumartímann. Á meðal listamanna sem fram koma eru Tómas R. Einarsson, Silva Þórðardóttir, Anna Gréta Sigurðardóttir, Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Umsjón: Felix Bergsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Söngkonurnar Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Selma Björnsdóttir flytja söngleikjalög í jazz-búningi. Hljómsveitina skipa Agnar Már Magnússon, Birgir Steinn Theódórsson og Jóhann Hjörleifsson.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur neitar að veiða múshveli í súpuna hans Alberts og Hallgrímur ákveður að reka þau á dyr. Til að komast hjá því leggur Albert af stað í hættulega skoffínveiðiferð. Ormhildur finnur slasað skoffín og kemst að því að hún er sú eina sem þolir banvænt augnaráð þess. Bilaði verndargripurinn hans Alberts gæti verið þeirra eina von.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Dönsku matgæðingarnir James Price og Mette Blomsterberg hittast í Krónborgarkastala og töfra fram girnilega rétti.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Við það að ná tökum á gróðureldum á Spáni

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bresk leikin þáttaröð fyrir alla fjölskylduna. Líf systkinanna Phoebe, Becks og Perry snýst á hvolf þegar móðir þeirra flyst skyndilega með þau úr þægilegu borgarlífi Glasgow í afskekkt þorp í skosku hálöndunum. Á sama tíma hverfur faðir þeirra á dularfullan hátt og einsetja systkinin sér að komast að sannleikanum um hvarfið. Þættirnir eru byggðir á samnefndri skáldsögu eftir Jacqueline Wilson. Aðalhlutverk: Kevin McKidd, Piers Ewart og Ida Brooke.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Noregs og Englands í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.
Grínsketsaþættir þar sem samskipti, íslensk menning, samfélagsmiðlar og allt sem er mannlegt er skoðað í kómísku ljósi. Handrit og aðalhlutverk er í höndum Kanarí-hópsins, sem samanstendur af nýrri kynslóð grínista sem hafa gert það gott með leiksýningu og sjónvarpssketsum síðustu misseri. Leikstjórn: Guðmundur Einar. Framleiðsla: Lára Theódóra Kettler Kristjánsdóttir.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Argentínu og Sviss í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Við það að ná tökum á gróðureldum á Spáni