Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB fer fram á laugardag. Í þessum þætti og þættinum annaðkvöld kynnum við okkur sjónarmið fólks sem ætlar annars vegar að segja já og hins vegar nei við því að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Kastljós kastaði hlutkesti í votta viðurvist um hvora hliðina yrði fjallað í þessum þætti og niðurstaðan var NEIið. Við fjöllum um JÁið á morgun.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1993. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Álfheiður Ingadóttir. Sigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans á Akureyri. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Ágúst Hauksson, Ólafur Jóhannes Einarsson og Sveinn H. Guðmarsson. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Baldur Helgi Benjamínsson, Kristbjörn Gunnarsson og Pálmi Óskarsson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Egil Fjeldsted sem lamaðist frá brjósti eftir alvarlegt bílslys. Hann tók þá ákvörðun eftir slysið að líta á björtu hliðarnar og vera þakklátur fyrir að vera á lífi. Eftir endurhæfingu einbeitti hann sér að námi og lærði m.a. sagnfræði. BA ritgerðin í náminu endaði sem bók um krapaflóðin á Patreksfirði árið 1983 þar sem fjórir létust og mikið eignatjórn varð.
Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Kristínu sem kennir okkur að búa til pylsur og rjómalagað hvítkál. Einnig hittir hún Ásu sem fræðir hana um sveppatínslu og Solla kennir okkur að nota sveppi í staðinn fyrir kjötáferð í matargerð.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Síðasti þátturinn sem fjallar um fréttir sumarsins. Í dag segjum við frá hinum ýmsu viðburðum um allt land🎉
1. Hátíðarhöld í sumar 2. Verslunarmannahelgin 3. Menningarnótt.
Endum þáttinn á flutningi Páls Óskars, Benna Hemm Hemm, Skólahljómsveitar Vestur- og Miðbæjar og Barnakórsins við Tjörnina á laginu Eitt af blómunum🌻
Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er einn fyrsti Evrópubúinn til þess að útskrifast úr leiklistardeild hins virta skóla Julliard. Hann hefur nú þegar skrifað undir samning við umboðsskrifstofu í Los Angeles og að sögn kennara við Julliard bíður hvíta tjaldið eftir honum. Ragnhildur Steinunn heimsækir leikarann Þorvald Davíð til New York.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB fer fram á laugardag. Í þætti kvöldsins kynntum við okkur sjónarmið fólks sem ætlar að segja já. Í gærkvöldi fjölluðum við um rökin fyrir því að segja nei við því að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Kastljós kastaði hlutkesti í votta viðurvist um hvora hliðina yrði fjallað fyrst. Niðurstaðan var að byrja á nei-rökum. Þessi þáttur fjallar aftur á móti um já-rökin.

Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti tökum við viðtal við Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra. Við fáum að smakka á því besta af borðum kokkalandsliðs Íslands og spókum okkur í einum elsta kirkjugarði landsins. Við sýnum frá opnun sýningar fatlaðra listamanna á Samúelssafni í Selárdal á Vestfjörðum og tökum sporin með djassballettskóla Báru.

Finnlands-sænskir þættir frá 2022. Vinkonurnar Tara og Malin verja sumri í sumarhúsi í sænsku sveitinni. Þar njóta þær náttúrunnar, elda mat og kryfja alls kyns málefni á borð við vináttu, líkamsímynd, átraskanir og kulnun.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2026. Lögfræðingar á lögmannsstofunni Matsson og Moradi takast á við stór og flókin mál þar sem mikið er í húfi. Nýliðinn Tilde stígur sín fyrstu skref inn í þennan harða og miskunnarlausa heim þar sem mörkin á milli réttlætis og góðs árangurs verða sífellt óljósari. Aðalhlutverk: Arvin Kananian, Björn Bengtsson og Kit Walker Johansson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Heimildarmynd frá 2023 um kínverskan huldumann sem gengur undir nafninu Karl Lee og er talinn hættulegasti vopnasölumaður heims. Í myndinni fylgja rannsóknarblaðamenn og sérfræðingur á sviði vopnasölu slóð Lees um fjórar heimsálfur í von um að varpa ljósi á umfang viðskipta hans. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð bresku dramaþáttanna um lögregluþjóninn Chris sem tekst á við glæpi og ofbeldi á götum Liverpool-borgar á sama tíma og hann berst við djöfla í einkalífi sínu. Chris reynir af fremsta megni að koma sér á beinu brautina, en þegar hann kemst upp á kant við einn stærsta eiturlyfjasala borgarinnar hallar undan fæti hjá honum. Aðalhlutverk: Martin Freeman, Adelayo Adedayo og Romi Hyland-Rylands. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngi en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.