Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Jacob Dunne sem banaði syni Davids Hodgkinson í Bretlandi árið 2011. Sú atburðarás og sættir þeirra eru efniviður leikristins Högg sem Magnús Geir Þórðarson leikstýrir. Kristín Skjaldardóttir reifar uppbyggilega réttvísi og Ragna Bjarnadóttir ræðir hvað gert er til að styrkja fanga til umbóta á lífi sínu.
Mömmurnar Katrín Hannesdóttir, Karen Birgisdóttir, Birgitta Rún Sveinbjörnsdóttir og Guðný Lára Bragadóttir lýsa þeirri reynslu að eiga allar sameiginlegt að búa í sama húsi og hafa átt tvíbura á síðustu tveimur árum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar?
Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Sverrir Guðmundsson, Arnar Þór Stefánsson og Hjalti Snær Ægisson. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Hallur Örn Jónsson, Óli Njáll Ingólfsson og Ágúst Flygenring.
- Endursýnt
Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar að afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til að freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill og Guðjón fara um gamla bæinn í Kaupmannahöfn, á slóðir Árna Magnússonar, Jóns Sigurðssonar, Fjölnismanna og Jóns Helgasonar. Þeir heyra af forréttindum sem Íslendingar nutu við háskólann, en líka af döprum örlögum fjölda stúdenta og bruna sem Íslendingar hafa löngum talið einn sorglegasta atburð í sögu sinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Viðtalsþáttur þar sem Viktoría Hermannsdóttir spjallar við áhugavert fólk á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Dagskrárgerð: Fannar Scheving Edwardsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel var ungur að árum þegar hann steig fram á sjónarsviðið og vakti strax athygli fyrir einlægni. Hann hvarf úr sviðsljósinu í nokkur ár en er kominn til baka á beinu brautina og hefur sent frá sér hvern stórsmellinn á fætur öðrum. Hann er einlægur í textasmíð sinni og óhræddur við að tala um erfiða og stóra fjölskyldusögu sína. Viktoría Hermannsdóttir ræðir við Kristmund Axel um tónlistina, lífið og það sem hefur mótað hann.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Ástsælu Múmínálfar Tove Jansson snúa aftur og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Mótmæli í Frakklandi 2. Íslendingur í París 3. Ísaksskóli 100 ára.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þættir um íslenska dægurtónlist þar sem tónlistarmenn koma í stutt viðtöl og flytja tónlist. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Fram koma Soffía, Inspector Spacetime, Spacestation , Kári Egils og Gosi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Gervigreind er þegar farin að hafa áhrif á hvernig við vinnum og spáð er að áhrif hennar á vinnumarkaðinn eigi eftir að verða víðtæk. En hverjir hagnast á því og hverjir tapa? Verður gervigreind til þess að draga úr ójöfnuði, auka hann eða búa jafnvel til nýja tegund ójöfnuðar? Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörður, ræða áhrif gervigreindar á vinnumarkað og réttlát umskipti.
Enn sér ekki fyrir endann á húsnæðisvandræðum Samhjálpar. Ár er síðan kaffistofa samtakanna missti húsnæði sitt í Borgartúni. Framkvæmdir við húsnæði á Grensásvegi, sem Samhjálp fær ekki að nota, hafa kostað samtökin 70 milljónir króna.
Karlakór Eyjafjarðar á 30 ára afmæli og heldur upp á það með stórtónleikum. Við lítum á æfingu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Afmælisþáttur í tilefni af fimmtíu ára afmæli Landssamtakanna Þroskahjálpar. Gestgjafar úr hópi fólks með fötlun halda upp á tímamótin með fjölskyldu og framámönnum. Þau skemmta áhorfendum með söng og hljóðfæraslætti og fagna þeim sigrum og umskiptum sem orðið hafa í lífi fólks með þroskahömlun frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Finnlandssænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð. Hvaða áhrif hafa fegurðarstaðlar á sjálfsmynd okkar og hvernig finnst konum að eldast? Rýnt er í mæðgnasambönd og hvað erfist á milli kynslóða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Spennan magnast upp innan vélhjólagengisins eftir að grunur vaknar um að á meðal þeirra leynist uppljóstrari.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2023. Árið 1956 flyst Roberts-fjölskyldan frá Bretlandi til Ástralíu í leit að betra lífi. Erfitt reynist að fóta sig í nýju umhverfi þar sem óvæntar áskoranir leynast á hverju strái. Aðalhlutverk: Warren Brown, Faye Marsay og Hattie Hook. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Beinar útsendingar frá HM í fimleikum.
Liðakeppni karla á HM í fimleikum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.