
Norskir þættir þar sem tvö lið keppast á um að greina hvað amar að sjúklingum. Í öðru liðinu eru læknar en í hinu liðinu er „venjulegt“ fólk sem má nota internetið sér til aðstoðar.

Danskir heimildarþættir um fjölskyldu sem ákveður að einfalda líf sitt - kveðja hina erilsömu Kaupmannahöfn og flytja búferlum í sveitasæluna á Fjóni. Fjölskyldan stundar þar sjálfsþurftarbúskap, gengur um berfætt, horfir ekki á sjónvarp né hlustar á útvarpið og börnin hafa aldrei smakkað hvítan sykur.

Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður, Randver og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.

Andri Freyr Viðarsson skoðar hina hliðina á hversdagsleikanum. Hann heimsækir forvitnilega staði, mætir á áhugaverð mannamót, spjallar við sérstakar týpur og prófar óvenjuleg störf. Ekkert er Andra óviðkomandi á flandri sínu um höfuðborgina; málaðir miðaldra rokkarar, falið kúluspilasafn, moskva í miðbænum, skeggjuð kona, fitulaust brúnt fólk, háskólanemar í þykjó, samkynhneigðir söngfuglar og fleira. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Stórveldið ehf.
Í hjarta Fellahverfis leynist alvöru pólsk matvöruverslun. Andri kaupir pylsur, súrar gúrkur og forvitnast um pólska menningu í Breiðholtinu. Andri kíkir líka í stúdíóið til Eika Einars sem rokkar fyrir Krist og tekur lagið með honum. Því næst fer Andri í starfskynningu hjá Útfararstofu kirkjugarðanna og skyggnist bak við tjöldin í starfsemi þeirra. Í lok þáttar smellir hann sér svo á boxmót og skoðar hina hliðina á íþróttinni.

Norskir þættir um líkamstjáningu þar sem teknar eru fyrir ýmsar aðstæður sem fólk verður gjarnan óöruggt í. Fjallað er um hvernig hægt er að vinna með líkamstjáningu til að virka öruggari til dæmis á stefnumótum og í atvinnuviðtölum.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Þjóðin elskar grín og sérstaklega það sem kallað er sketsar. Upprennandi grínistinn Unnar Steinn ætlar að segja okkur frá Sketsagerðinni sem hann heldur úti á samfélagsmiðlum. Ef það er ekki nóg þá ætla sérfræðingarnir Birna Rún og Pálmi Freyr að kryfja með sketsaformið sem sérfræðingar vikunnar.
Daði Freyr sem er að gefa út nýja plötu á morgun – við heimsækjum hann í stúdíóið á nýja heimilinu í Hveragerði og hann tekur fyrir okkur lagið þar.


Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Klónið nýtur mikilla vinsælda, annað en Matilda.

Sænsk þáttaröð þar sem við fylgjumst með sænskri fjölskyldu gera upp gamalt hús á Sikiley.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Ný íslensk grínþáttaröð eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Vigdísi Hafliðadóttur. Þrjú ungmenni takast á við þær áskorarnir sem fylgja þrítugsaldrinum; háskólann, vinnumarkaðinn, sambandsdrauga, rappara og glataða æskudrauma. Hér mætir íslenskur veruleiki óbeisluðu ímyndunarafli. Þættirnir skarta sex frumsömdum lögum eftir FLOTT. Aðalhlutverk: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og Vigdís Hafliðadóttir. Leikstjóri: Kristófer Dignus. Framleiðsla: Kontent.
Diljá fer á djammið. Janus fer á djammið. Teitur fer á djammið.

Glæný tónleikamynd í leikstjórn Freys Árnasonar. Í nóvember 2025 hélt Jón Jónsson upp á 40 ára afmælið sitt með tónleikum í Eldborg. Hér gefst áhorfendum kostur á að hlýða á helstu slagarana í bland við einlægar sögur af ferlinum auk þess sem Jóni er fylgt eftir við undirbúning tónleikana. Framleiðandi: Kári Steinarsson.
Breskir leiknir þættir frá 2025. Evie og Noa eru forfallnir kvikmyndanördar sem fá útrás fyrir áhugamálið í vikulegum kvikmyndaklúbbi þar til að óvænt flétta kemur klúbbnum í uppnám. Aðalhlutverk: Aimee Lou Wood, Nabhaan Rizwan og Liv Hill.
Önnur þáttaröð breskra glæpaþátta um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie sem rannsakar gamalt, óleyst sakamál og kemur auga á ýmsa vankanta á upphaflegu rannsókninni. Aðalhlutverk: Lauren Lyle, Chris Jenks og Zach Wyatt. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Frönsk-túnisk gamanmynd frá 2019 í leikstjórn Manele Labidi Labbé. Sálgreinirinn Selma snýr aftur til heimabæjar síns í Túnis og opnar sálfræðistofu. Ekki eru allir bæjarbúar sáttir við þetta framtak í fyrstu en smám saman snýst þeim hugur og kúnnahópur hennar stækkar ört. Fljótlega veit Selma öll leyndarmál bæjarins og málin flækjast enn frekar þegar myndarlegur lögreglumaður fer að sýna henni áhuga. Aðalhlutverk: Moncef Ajengui, Amen Arbi og Ramla Ayari.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fimm listar eru í framboði í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jónína Brynjólfsdóttir, Framsóknarflokki, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Austurlistanum og Viðreisn, Lárus Bjarnason, Miðflokki og Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og óháðra.

Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Tveir listar eru í framboði í Ölfusi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Grétar Ingi Erlendsson, Sjálfstæðisflokki, og Gunnsteinn R. Ómarsson, Samfylkingu og félaga.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

An Icelandic comedy series by Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Three young adults navigate the challenges of their twenties: university life, the job market, ghosts of past relationships and faded childhood dreams. The series features six original songs by the band FLOTT. Starring: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson and Vigdís Hafliðadóttir. Director: Kristófer Dignus. Production: Kontent.