
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Stjórnvöld stefna á þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB í lok ágúst. Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur ræddi við Kastljós um Evrópusambandið og stöðu þess en einnig stöðu Íslands, ef til aðildarviðræðna kæmi. Einnig rætt við Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Guðrún Sóley heimsótti líka Finn Arnar Arnarson, listamann, þegar tjaldútilega hans innandyra í Ásmundarsafni var hálfnuð. Hann dvaldi nótt og dag á safninu á meðan hann vann að verkinu Dómur.