
Fílsi leggur af stað í tónlistarævintýri á landi og á sjó!
Fílsi leggur af stað í tónlistarævintýri á landi og á sjó!
Fílsi hittir krabba og börnin hoppa eins og héri, fljúga eins fuglinn og trampa eins og björninn!
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að koma börnum sínum í bólið. Sonur hans vill sofa með hryllilegu dúkkuna sína, og um tíma heldur Eddi að dúkkan sé á lífi. Hann verður að bjarga börnum sínum frá undarlegu dúkkunni!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Ormhildur neitar að veiða múshveli í súpuna hans Alberts og Hallgrímur ákveður að reka þau á dyr. Til að komast hjá því leggur Albert af stað í hættulega skoffínveiðiferð. Ormhildur finnur slasað skoffín og kemst að því að hún er sú eina sem þolir banvænt augnaráð þess. Bilaði verndargripurinn hans Alberts gæti verið þeirra eina von.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Í þættinum fer Kolbrún vaka í meðferð til fuglafælni, við heimsækjum bæinn Strandarhöfða þar sem tík hefur tekið að sér móðurlaust lamb, hittum systurnar Glódísi og Védísi sem hafa kennt hestunum sínum ótrúlegustu hluti og heimsækjum býflugnabændur.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Elísabet Inga Sigurðardóttir, Gunnar Birgisson, Fannar Ingi Friðþjófsson og Haukur Heiðar Hauksson.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Íslensk heimildarmynd frá 2021. Stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu rís á sjöunda áratugnum í anda alþjóðlegra framtíðarhugmynda. Hálfri öld síðar fær byggingin dóm um að víkja. Innan úr byggingunni mætum við afli vélarinnar og kröftum náttúrunnar, verðum vitni að niðurrifi og upplausn bankans með daglegt líf borgarinnar í bakgrunni. Þetta er jarðsetning, endalok stórhýsis á endastöð hugmynda um einnota byggingar. Leikstjórn og framleiðsla: Anna María Bogadóttir.
Íslensk heimildarmynd um hljómsveitina Moses Hightower þar sem fylgst er með sveitinni við upptökur á plötunni Lyftutónlist sem kom út árið 2020. Í gegnum upptökuferlið kynnumst við meðlimum hljómsveitarinnar og uppruna hennar. Við komumst að því hvernig lag verður til og hvernig er að vera tónlistarmaður í litlu landi. Hversu marga bolla af kaffi þarf til að klára plötu? Leikstjóri: Helgi Jóhannsson. Framleiðsla: Snark.

Heimildarþættir frá BBC þar sem Chris Packham fær fólk á einhverfurófi til að sýna hvernig hugur þess virkar og aðstoðar það við að tengjast fjölskyldu sinni og vinum á nýjan hátt.

Heimildarmynd um leitina að Gullskipinu, Het Wapen van Amsterdan, sem var hlaðið gersemum þegar það fórst í nágrenni við Skeiðarársand árið 1667 og hefur aldrei fundist. Dagskrárgerð: Jón Ársæll Þórðarson og Steingrímur Jón Þórðarson.

Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Við rifjum upp hin mannskæðu snjóflóð í Neskaupsstað árið 1974. Við fjöllum um þorskastríðin og hittum mann sem var ráðinn á eitt varðskipanna eftir að hluti áhafnar þess var handtekinn af Bretum. Við förum með Stundinni okkar á Seyðisfjörð, kíkjum á Steinasafn Petru á Stöðvarfirði, heyrum í Sue Ellen, förum í vitjun með héraðslækni, sjáum Lagarfljótsorminn og tökum þátt í þvottabalarallí svo fátt eitt sé nefnt.

Norskir þættir þar sem fjallað er um hjónabandið í sögulegu samhengi. Það að við veljum okkur maka út frá ástinni er í raun tiltölulega nýtt í sögu hjónabandsins en lengst af voru það ættingjar, kirkjan og samfélagið í held sinni sem stýrðu því hverjir gengu í hjónaband.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Aumingja Sjón fær tak í hálsinn og Loft gerir allt í sínu valdi til að láta henni líða betur. Á meðan setur Sunna á svið hæfileikakeppni með krökkunum.
Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Rósa heldur áfram að þykjast vera strákur og spila með Fylki. Hún fær góð ráð frá markahæstu landsliðskonu Íslands - og Evrópu. Jón áttar sig á því að það er ekki í lagi með pabba hans Ívars, á meðan Skúli virðist móðga alla sem hann hittir.
Þáttaröð um íslenska tónlist í umsjón Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar og þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Textað á síðu 888 í Textavarpi.

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Samantektarþáttur frá Landsmóti hestamanna sem fram fór á Hólum í Hjaltadal, dagana 4. - 11. júlí 2026. Þar komu saman fulltrúar hestamannafélaga um allt land í gæðingakeppni, tölti og kappreiðum og hæst dæmdu kynbótahross landsins létu gamminn geisa.
Farið yfir helstu niðurstöður í öllum flokkum, kynbótasýningum og fylgst með mannlífi á mótsstað. Umsjón og dagskrárgerð: Hulda G. Geirsdóttir og Óskar Þór Nikulásson.
Ferðaþættir þar sem leikarinn Örn Árnason bregður sér í hlutverk leiðsögumanns og ferðast um áhugaverða staði við þjóðveginn eða örskammt frá. Frikki Frikk, tökumaður og ljósmyndari, er fylgdarsveinn Arnar í þessum ferðum og saman sýna þeir fram á að stundum er óþarfi að leita langt yfir skammt. Léttir þættir þar sem fjallað er um náttúru, sögu og menningu.
Í þættinum förum við um Rauðhóla og Rauðavatn og ræðum um tröllabörn og drauga í brekku. Einnig skoðum við hverasvæðið við skíðaskálann.
Bresk leikin þáttaröð frá 2024. Fátæk fjölskylda af verkamannastétt verður vellauðug á svipstundu þökk sé róttækri viðskiptahugmynd þeirra. Þau kveðja slorið og flytja á sveitasetur þar sem þau þurfa að fóta sig í framandi heimi yfirstéttarinnar í Yorkshire í lok 19. aldar. Þættirnir eru byggðir á metsölubókum eftir C. L. Skelton. Aðalhlutverk: Claire Cooper, Liam McMahon og Shannon Lavelle. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Pólsk-íslensk kvikmynd frá 2021 í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar. Eftir 15 ár í pólsku fangelsi er Anna frjáls ferða sinna. Óuppgert mál úr fortíðinni leiðir hana til lítillar eyju við Íslandsstrendur í leit að konu sem býr þar í pólsku innflytjendasamfélagi. Aðalhlutverk: Olga Boladz, Anna Moskal og Eryk Lubos. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Þættirnir fjalla um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Í þessum þætti segir frá Alberti Guðmundssyni sem fæddist árið 1923 og lést 1994. Hann var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu og lék meðal annars með liðunum Arsenal og AC Milan. Eftir að knattspyrnuferlinum lauk sneri Albert sér að stjórnmálum og var kjörinn til Alþingis.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.