Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1991. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Að þessu sinni mætast lið Flensborgarskóla og Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Lið Flensborgarskóla skipa Bjarni Kristjánsson, Skarphéðinn Orri Björnsson og Svanur Snorrason. Lið Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki skipa Smári Sigurðsson, Ágúst Jakobsson og Stefanía Malen Stefánsdóttir.
Dönsk heimildarmynd frá 2020 í tveimur hlutum sem varpar ljósi á líf nokkurra samkynhneigðra manna sem rifja upp árin upp úr 1980. Lífið virtist brosa við þeim þegar fregnir tóku að berast af dularfullum og ólæknandi sjúkdómi sem virtist aðeins leggjast á homma.
Þáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur garðyrkjufræðings þar sem hún sýnir áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum fyrsta þætti er farið í heimsókn til hjóna í Garðabæ, þeirra Steinunnar Gísladóttur og Jóns Magnúsar Vilhelmssonar. Þar eru þau frumbýlingar og hafa sniðið garð sinn og gróður allan ákaflega fallega.
Gurrý sýnir hvernig planta eigi í hengikörfur. Að síðustu hreinsar Gurrý mosa sem gægist upp á milli hellna í garðinum og hugar að kartöfluútsæðinu.
Íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er að búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.
Halldór Kristjánsson býr á bænum Stíflisdal í Bláskógabyggð. Þar setur tilkomumikill fjallahringur svip á landslagið og fossar, gil, vötn og ár prýða jörðina. Halldór segir frá lífinu í sveitinni og sýnir okkur perlurnar í nágrenninu. Lára fer einnig með bandaríska ljósmyndarann og ævintýramanninn Chris Burkard um sveitina.
Þættir um börn og ungmenni sem eiga annað móðurmál en íslensku og hafa hlotið Íslenskuverðlaun unga fólksins. Dagskrárgerð og umsjón: Hafsteinn Vilhelmsson.
Tobias fæddist á Íslandi árið 2009, en móðurmál hans er þýska. Tobias les mikið og var ekki lengi að klára að lesa þær bækur sem honum fannst áhugaverðar á skólabókasafninu. Hann segir að íslenska sé skemmtilegt tungumál að læra og endalaust hægt að leika sér með málið.


Fjórða serían af Hönnunarstirnunum. Nico og Andrés eru mættir einu sinni enn með ný og skemmtileg verkefni og nýja keppendur.
Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Kaz vill finna týnda vin sinn aftur og biður Louis um að ná í Meg aftur. Á sama tíma fara undarlegir hlutir að gerast í skóginum.
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Finni Krumpa prumpuskrímsli fólk í vanda, tekur hún til sinna handa. Hún sturtar í sig nokkrum rúsínum og þá þýtur hún prumpandi af stað. Hún flýgur um allt, hátt og lágt með prumpuský í eftirdragi. Best að halda niðri í sér andanum skyldi hún fljúga fram hjá!

Önnur þáttaröð um sænska fjölskyldu sem gerir upp gamalt hús á Sikiley.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Danskir spennuþættir fyrir alla fjölskylduna. Romeo og Holly komast yfir tímavél sem flytur þau aftur til miðalda. Þar hitta þau unga aðalsmanninn Laurentius sem vill svo til að er forfaðir Hollyar. Saman flækjast þau í örlagaríka atburðarás sem gæti kostað þau lífið. Þættirnir eru sjálfstætt framhald jóladagatalsins Tímaflakksins. Aðalhlutverk: Julian Brix, Lærke Krabbe De Waal og Caspar Phillipson.

Bandarísk fjölskyldumynd frá 2006 í leikstjórn Michaels Mayer. Katy er ung stúlka sem tekur að sér villtan hest til að sanna fyrir föður sínum að hún geti einn daginn tekið við búgarði fjölskyldunnar. Aðalhlutverk: Alison Lohman, Tim McGraw og Maria Bello.
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Draugar fortíðar ásækja bráðalækninn Kristínu þegar hún flytur með Lilju, unglingsdóttur sinni, heim til foreldra sinna á Hólmafirði og reynir að ná áttum eftir framhjáhald eiginmanns síns. Hún hefur störf á heilsugæslu bæjarins og þarf að sýna gömlum vinum að hún er bæði fær stjórnandi og læknir.

Upptaka frá stórtónleikum hljómsveitarinnar Írafárs í Eldborg í Hörpu í júní 2018. Á tónleikunum kom hljómsveitin saman í fyrsta sinn í tólf ár í tilefni tuttugu ára afmælis sveitarinnar og tók alla sína helstu smelli. Stjórn upptöku: Salóme Þorkelsdóttir.
Breskt drama frá 2021 um Talithu Campbell, dóttur auðugs athafnamanns, sem er handtekin, grunuð um morð á skólasystur sinni. Lögmaðurinn Cleo Roberts er ráðin til að verja Talithu á meðan lögregla og saksóknari vinna hörðum höndum að því að sanna sekt hennar. Aðalhlutverk: Celine Buckens, Tracy Ifeachor og Joseph Payne. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Icelandic drama series about Kristín, an emergency doctor who moves with her teenage daughter back to her parents' home in a small fishing village, following her own husband's affair. Kristín, who is grounded and rational, quickly realises she is out of her comfort zone communicating with her mother, a medium, and finds herself forced to look the ghosts of her past directly in the eye. Director: Eva Sigurðardóttir. Starring: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir, and Jói Jóhannsson. Not suitable for young children.
Ghosts from the past encircle the emergency doctor Kristín as she moves with Lilja, her teenage daughter, back home to her parents in Hólmafjörður as she tries to recuperate after discovering her husband's affair. She starts work at the local healthcare centre and needs to prove to old friends that she is a competent manager and doctor.