
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar hittum við Maó Alheimsdóttur sem er handhafi Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabókina Hvalbak. Maó er pólsk að uppruna, býr á Íslandi, starfar meðal annars sem fjallaleiðsögumaður og skrifar bókmenntir á íslensku. Guðmundur Andri Thorsson ræðir við okkur um Jón Thoroddsen. Hann þótti mikið efni, var á báðum áttum hvort hann ætti að leggja fyrir sig skáldskap eða stjórnmál, sendi frá sér bók með prósaljóðum sem nefnist Flugur. Jón var aðeins 26 ára þegar hann varð fyrir sporvagni í Kaupmannahöfn og lést. Flugur hafa nú verið endurútgefnar með eftirmála Guðmundar Andra. Við spjöllum við Eriku Fatland sem er norskur höfundur ferðabóka – bækur hennar hafa náð metsölu í Noregi og verið þýddar á ein tuttugu tungumál. Meðal annarra verka má nefna Landamærin en þar ferðast hún um öll ríki sem eiga landamæri að Rússlandi. Í Bókum og stöðum förum við norður í Trékyllisvík á Ströndum, á slóðir þar sem meintir galdramenn voru brenndir á sinni tíð. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Söguþætti landpóstanna, Ekkert eftir Janne Teller og Lokar augum blám eftir Margréti S. Höskuldsdóttur. Óvæntur gagnrýnandi leggur okkur lið í umfjölluninni um landpóstana.