Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Innviðaráðherra sagði um helgina að hann hefði miklar áhyggjur af stöðu Icelandair. Gengi hlutabréfa í félaginu hafði þá lækkað um tuttugu prósent frá áramótum og ekki verið lægra í fimm ár. Talsverðar sveiflur hafa verið á gengi félagsins undanfarna viku sem tengist miklum breytingum á heimsmarkaðsverði olíu en hlutbréfin hækkuðu skarpt við opnun markaða í morgun og hækkunin í dag nam um 12 prósentum. Gestur Kastljóss er Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.
Við hittum ungan mann á Akureyri sem fann sig í starfstengdu námi á lagernum hjá Johan Rönning. Þar var honum tekið opnum örmum og landið fór að rísa eftir að hann hafði hvorki fundið sig í námi né starfi um nokkurt skeið.
Hver hefur ekki látið sig dreyma um að tæta sundur andleg þyngsli og losa sig þannig við þau varanlega? Nú er það mögulegt í Monstery listaverkefninu í Ámundarsal.
