
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Við fjöllum um gagnmerkt sagnfræðirit sem nefnist Berklar á Íslandi. Höfundurinn er Erla Dóris Halldórsdóttir, en þarna rekur hún sögu þessa skæða sjúkdóms sem var faraldur á fyrri hluta síðustu aldar og grandaði að talið er 6000 Íslendingum, mest ungu fólki. Hildur Knútsdóttir segir okkur frá nýrri hrollvekju sinni sem nefnist Irpa og gerist á eyju fyrir austan land. Rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir ræðir við okkur um uppáhaldsbækurnar sínar. Í Bókum og stöðum förum víð í Steingrímsfjörð og Bjarnarfjörð og verður þar meðal annars á vegi okkar fræg ófreskja sem Selkolla nendist. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Ósmann eftir Joachim B. Schmidt, Stúlku með fálka eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Kæra fávita eftir Virginie Despentes.