13:30
Kastljós
Kristrún Frostadóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir um þinglok, lögregludrónar

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Kristrún Frostasdóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokkins eru gestir Kastljóss. Alþingi er á lokametrunum áður en þingi verður slitið og þingmenn í óðaönn við að samþykkja síðustu málin fyrir sumarfrí. Styr stóð um fjármálaáætlun, sem þó var samþykkt í gær, og stjórnarandstaðan vill bæta við þingfundi í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.

Lögreglan hefur tekið í sína þjónustu sérstaka lögregludróna, sem geta stytt viðbragðstíma margfalt og hafa þega sinnt um 500 útköllum. Við kynnum okkur málið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 29 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,