Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, segir Ísland hafa sérstöðu umfram önnur umsóknarríki vegna EES-samningins og Schengen-samstarfsins. Það sé líklegt til að flýta fyrir aðildarviðræðum kjósi þjóðin að halda þeim áfram. Við ræðum við Mörtu Kos.
Talið er að krabbameinstilfellum eigi eftir að fjölga um allt að 65 prósent hér á landi á næstu tveimur áratugum. Hvernig erum við í stakk búin að takast á við þá fjölgun og hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir krabbamein? Við ræðum við Beatrice Ferver, sérfræðing í krabbameinsforvörnum, og Sigurdísi Haraldsdóttir krabbameinslækni og yfirlækni á Landspítala.
Sara Magnúsdóttir, Hammondleikari, var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum, sem veitt voru fyrir skemmstu. Sara býr nú í New York og kemur ár sinni fyrir borð í tónlistarsenunni þar. Við kynntum okkur þessa björtu von.
