Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Sýn og Síminn eru í viðræðum um að Síminn kaupi nær allan fjölmiðlahluta Sýnar, þar á meðal Bylgjuna og Vísi. Sjónvarpshlutinn verður eftir en óvíst er um afdrif kvöldfréttatíma Sýnar. Hvað þýðir þetta fyrir neytendur og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi? Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, og Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins fara yfir stöðuna.
Það er ekkert bannað og leikgleðin er í fyrirrúmi í tónlistarskólanum Tónræktinni á Akureyri. Þar eru nemar á öllum aldri og öllu litrófi mannlífsins. Við fórum í heimsókn.
Myndirðu vilja tala við látna ástvini með aðstoð gervigreindar? Um það fjallar leikritið Dead Air eftir leikkonuna og leikskáldið Álfrúnu Rose.
