
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1996. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari: Helgi Ólafsson. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Menntaskólinn í Reykjavík og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði mætast í úrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Kjartan Bjarni Björgvinsson, Arnór Hauksson og Guðmundur Ragnar Björnsson. Lið Flensborgarskólans skipa Magnea Erna Auðunsdóttir, Guðmundur Sverrir Jónsson og Orri Þórðarson.
- Endursýnt
Íslensk þáttaröð í átta hlutum. Einlægar og opinskáar frásagnir fólks sem býr við aðstæður í daglegu lífi sem eru ólíkar öllu sem flestir eiga að venjast. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir. Framleiðsla: SERES hugverkasmiðja
Valdimar Sverrison er lífsglaður fjölskyldufaðir og ljósmyndari sem missti sjónina óvænt, vart fimmtugur. Hann sneri vörn í sókn með húmorinn að vopni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Stuttir heimildarþættir frá Noregi um tilfinningaflækjur Ariane, ungrar norskrar konu sem er dökk á hörund og með krullað hár. Á að leyfa afróinu að njóta sín? Má annað fólk koma við hárið? Á hún að vera stolt af krullunum eða bara alls ekki?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Önnur þáttaröð þar sem hin sænska Gina Dirawi ferðast um heiminn og heimsækir fólk sem hún heillast af. Stutt er á milli hláturs og gráts þegar viðmælendur segja frá lífshlaupi sínu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Þáttaröð þar sem Gunnlaugur Helgason húsasmiður leiðir áhorfendur í allan sannleika um hver fyrstu skrefin eru þegar taka á húsnæði í gegn. Gulli hefur verið fengin til þess að koma lagi á kjallara í 65 ára gömlu húsi í Reykjavík. Óþefur og ýmis konar skordýr hafa hrjáð þá sem kjallarinn hefur hýst um nokkurn tíma og greinilegt er að húsið er komið á tíma. Undir leiðsögn Gulla og fagmanna á hverju sviði vinna íbúar og eigendur húsnæðisins, ásamt vinum og ættingjum að breytingunum. Dagskrárgerð: Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Framleiðandi: Krummafilms.
Þá er það lokasnúningurinn á því að gera húsnæðið klárt. Ýmsir smáhlutir, og stórhlutir, koma í hús og við heimsækjum fyrirtæki á Akureyri sem framleiðir rafmagnsdósir. Daníel Hjörtur mætir í garðinn og sker út skúlptúr í trjástubb fyrir utan. Hann sýnir okkur heita pottinn sinn og stúdíó í Keflavík en þar rekur hann gistiheimilið Guesthouse 1x6. Hilmir Ingi Jónsson rafvirki sýnir okkur uppfinningu sína sem gerir honum kleift að greina óæskilegt álag á öryggjum. Að lokum kennir Gulli okkur að parketleggja og þá má fara að flytja inn í nýja fína kjallarann sem nú er laus við skordýr og óværu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending
Leikin þáttaröð frá 2025 byggð á sannsögulegum atburðum. Eftir að hersveitir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í NATO yfirgefa Afganistan í ágúst 2021 líður ekki að löngu þar til Talibanar hefja að taka yfir hverja borgina á fætur annarri þvert á gefin loforð. Almennir borgarar, diplómatar og hermenn keppast við að komast í öruggt skjól áður en Kabúl fellur. Aðalhlutverk: Jonathan Zaccaï, Vassilis Koukalani og Darina Al Joundi. Handritshöfundar: Olivier Demangel og Thomas Finkielkraut. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Heimildarmynd um hljómsveitina Oasis sem sló í gegn árið 1994 með fyrstu plötu sinni, Definitely Maybe. Í myndinni er fjallað um sögu hljómsveitarinnar frá því hún var stofnuð snemma á tíunda áratugnum og fylgst með hvernig frægðarsól hennar reis næstu ár. Leikstjóri: Mat Whitecross. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.